Loksins er komið fram framboð sem ég vildi gjarnan styðja

Málið er nú bara það að loksins nú þegar komið er framboð með fólki sem ég get treyst og  myndi gjarnan styðja en gallinn er bara sá að þá þyrfti ég að flytja bólfesti mitt norður í land. Það gleður mig að sjá að á meðal manna á lista þessa nýstofnaða framboðs eru í.þ.m. 4 af fyrrum sveitungum mínum úr Kelduhverfinu auk annarra úrvalsmanna og ber þar helst að nefna Áka Hauksson sem er í 3ja sæti listans, sem er mætur mjög og maður mikilla heilinda og mikill dugnaðarforkur.  Mig langaði nú bara að deila þessu með ykkur og kannski eru einhverjir bloggvinir o.e. aðrir lesendur sem eru búsettir í Norðurþingi og hafa áhuga á að kynna sér málið 
mbl.is Friðrik í fyrsta sæti Þinglistans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki fyrir mig en takk samt.

Ásdís Sigurðardóttir, 15.4.2010 kl. 12:29

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Menn mikilla heilinda og þar að auki dugnaðarforkar eiga að halda sig í átthögum sínum, en ekki í spillingunni sunnanlands. Þetta er eins og með hrossarækt! ekki blanda truntum ínn í góðan stofn.

50 caliber

Eyjólfur Jónsson, 19.4.2010 kl. 15:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér vel með að flytja Hulda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2010 kl. 18:22

4 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Takk Ásdís mín

Hulda Haraldsdóttir, 20.4.2010 kl. 02:00

5 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Sæll Eyjólfur, mikið rétt hjá þér enda held ég að það sé engin hætta á því að þetta mæta fólk muni fara að blanda sér í pólitíkina hér fyrir sunnan, heldur er framboðið einungis í heimahögum. Þakka þér innlitið og álitið

Hulda Haraldsdóttir, 20.4.2010 kl. 02:13

6 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Mín kæra Ásthildur ójá ég myndi gjarnan vilja flytja aftur út á land enda hefur landsbyggðin uppá svo margt að bjóða umfram þéttbýlið en  eins  og þú veist þá strandar allt á atvinnumálum og afkomu. Bestu þakkir fyrir hlýhuginn.

Hulda Haraldsdóttir, 20.4.2010 kl. 02:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband